föstudagur, september 03, 2010

1 kafli.

Shit, annan eins hausverk hef ég aldrei fengið hugsa ég á meðan ég geri allt sem að ég get til að reyna að vakna ekki. Það er víst of seint.
Ég þarf víst að takast á við blákaldan raunveruleikan. Gærkvöldið var eins og búast mátti við, fínt partý og hressandi fólk.
Skil ekkert í því að ég láti alltaf plata mig niður í bæ, og það er alltaf jafn fucking ömurlegt.
Það eina jákvæða við þessa bæjarferð er þessi pía sem að liggur hérna við hliðina á mér.
Hún snýr reyndar baki í mig og ég man ekki alveg hvernig hún lítur út en skrokkurinn er allavega í lagi, miðað við það sem að ég sá þegar að ég lyfti upp sænginni.
Alveg týbíst ef að smettið á henni er ekki upp á margar loðnur. Best að drulla sér framúr til að þykjast vera hressi gaurinn þegar hún vaknar.
Vá hvað ég get orðið pirraður á því að finna ekki símann minn. Aldrei getur maður lagt hlutina á einn stað þegar maður kemur heim af djamminu,
þetta er alltaf út um allt.
Finn loksins helvítis símann í jakkavasanum. 17 missed calls frá hinum og þessum sem að skipta engu máli kl að verða 8 í morgun.
Ekki séns að ég hringi í nokkurn af þessum nema Þránd.
Hann getur vonandi fyllt inn í gloppurnar hjá mér síðan í gær.
Aldrei get ég almennilega sofið eftir að ég dett í það. Sófinn horfir á mig og ég sé alveg hvernig hann býður upp á teppið í leiðinni.
Ég sem er svoddan sófadýr þannig að ég læt það eftir mér eins og venjulega. Sjónvarpið býður upp á dagskránna eins og hún lagði sig í gær.
Frétta og Íþróttaannálar í nákvæmlega sömu röð og þeir voru í gær.
Svo sem ekkert annað að gera en að glápa á það aftur. Íslenski annállinn var að vísu svo leiðinlegur að ég er ekki viss um að ég nenni að horfa á hann.
Ekkert nema grenjandi bankamenn og stjórnmálamenn að rífast um allt og kennandi öllum öðrum um en sér sjálfum.
Þeir hefði betur komið á þjóðstjórn þegar allt fór til andskotans. En nei. Að hafa völd
skipti meira máli en að koma löppum undir land og þjóð. Fávitar allt saman.
Hringi í Þránd, hann breytir til og svarar ekki, frekar en venjulega daginn eftir fyllerí.
Hann getur alltaf sofið endalaust á meðan að ég hugsa mest um að binda hnútinn færga og henda honum upp í loftið og láta mig flakka af kollinum í kringum 10 leytið.
Læt sms fylga á eftir. " Fínt væri að fá símtal um leið og þú vaknar"
Finn það með sjálfum mér að ég verð að fá eitthvað að borða áður en að ég gjörsamlega dey úr hungri. Líður eins og ég hafi ekki fengið að borða í 6 mánuði.
Í gærkvöldi leið mér hins vegar eins og að ég þyrfti aldrei að borða aftur.
Mútterin var með dúndurmat með alles og ég hugsa að mér hefði verið fyrirgefið ef að ég hefði tekið búlúmíu sjúkliginn á þetta og sett puttan upp í kok inni á letti eftir matinn.
Hungrið dergur mig inní eldhús, en ég veit það fyrir að það er ekki til rassgat að éta.
Man þó eftir einum Pringels stauk upp í skáp. Hann fylgir mér í sófan aftur ásamt stóru glasi af kók.
Íþróttannállinn á tvistinum er betri en venjulega. Ríkisvarpið drullar á sig enn eitt árið með fastreimaðar buxurnar. Undarlegt alveg að þetta fara skattpeningar manns í.
Síminn hringir. Mútterin á hinum endanum. Hún vill sennilega að ég fari að drulla mér "heim" í afganga.
Ég rölti út á svalir hjá mér og lít yfir bílastæðið. Af hverju keypti ég íbúð með svölum sem bjóða upp á útsýni yfir bílastæði? Ákveð í leiðinni að svara símanum.
Halló! Daginn elskan, hvernig er heilsan? hún er nú ekki upp á margar loðnurnar skal ég segja þér.
Varstu lengi að? Ég skrölti hérna heim einhverntíman. Slúttið er frekar gloppótt.
En var ekki gaman? jú það var rosa fínt hjá Þrándi, en við þurftum endilega að fara í bæinn og það er ekkert nema vesen eins og þú veist. Já ok,
ég skil ekkert í ykkur að vera að fara alltaf í bæinn. En viltu ekki koma í afganga á eftir?
jú ég er svo sem alveg til í það, en ég fer til pabba í mat í kvöld. Já ég er nú bara að tala um í kringum hádegið, passar það ekki fínt fyrir þig Viktor minn?
jú ég ætti að ná því, það gæti hins vegar oltið á því hvort að stykkið sem er inn í herbergi vakni fyrir þann tíma. Ekki skil ég hana eftir hérna.
Viltu ekki bara taka hana með? Eimmitt mútter, gleymdu því.
Ég dúndra henni út og læt sjá mig. Og þá sjáumst við á eftir.
Ég nenni ekki hálft yfir til múttu og Fribba núna. En kosturinn við að mútter verður með matinn frá í gær er það eina sem að huggar mig.
Get þá gúffað í mig og lagt mig aftur, áður en að ég fer og hitti kallinn í kvöld.
Klukkan er orðin rúmlega 12. Ekki hefur heyrst múkk í stykkinu inni í herbergi.
Er búinn að hugsa það í smá stund hvort að ég ætti að missa eitthvað hressilega í góflið til að vekja hana, ókosturinn er hins vegar sá að ég gæti brotið glasið ef að ég læt það flakka.
Býð aðeins lengur, opna tölvuna. Mbl og vísir eru fullir af atburðum gærkvöldins.
þessi skaut flugelda í bíl, þessi var ölvaður og eitthvað álíka leiðinlegt. Logga mig inn á Fésið.
Verð satt og segja pirraður yfir öllum leiðindarstatusum sem að þessir "vinir mínir" á fésinu eru með. Gleðilegt nýtt ár, geggjað gaman í gær, vá hvað ég var full/ur í gær.
Það eru greinilega fleirri í sömu stöðu og ég, að geta ekki sofið í dag.
Nenni ekki að tala við nokkurn mann þar. Set inn almennilegan status hjá mér! Ég er þunnur, látið mig í friði.
Fólk þarf að læra að það er ömurlegt að lesa statusa sem eru leiðinlegir. Mér er skítsama hvort að þessi eða hinn sé að fara að éta petsu í kvöldmat eða eitthva álíka.
Ákveð að þykjast vera hressi gaurinn þegar að stykkið vaknar, ríf mig upp frá íþróttaannálnum, enda verið að sýna enska boltan og það að vera Liverpool maður er hrikalega erfitt í dag. Maður reynir að hafa ekki hátt um það.
Ég hef allavega vit á því á að halda kjafti þegar kemur að enska boltanum.
Kveiki á kaffikönnunni, Senseo er málið þegar maður býr einn. Lauma einum expressó í vélina og lauma honum í mig.
Finn það á mér að ég þarf á fleirrum expressó að halda til að lifa daginn af.
Ekki getur maður dúndrað í sig bjór svona snemma. Reyndar er komið framyfir hádegi. En andskotinn hafi það, ég get bara ekki drukkið bjór.
Inn á bað, sturtan í gang, bursta í mér stellið áður en að ég lauma mér inn í sturtuna.
Á meðan vatnið rennur yfir mig verð ég fullviss um það að þetta á eftir að verða langur dagur. Mjög langur.
Líður reyndar betur eftir að vera búinn að sturta mig, finn samt að hausverkurinn er enn til staðar er ég þurka á mér kálið.
Rölti allsber frá baðinu inn í herbergi, vek hana ef að hún er ekki vöknuð hugsa ég á leiðinni á milli.
SMS tóninn lætur heyra í sér í símanum, Þrándur er vaknaður. Reikna með því að hann hafi endað á útivelli á meðan ég tek skrefin inn í stofu til að ná í símann.
Og viti menn, já viti menn. SMS-ið lítur ekki vel út, það sem að birtist á skjánum hjá mér er "traustur vinur" Það þýðir bara eitt.
Ég þarf að ná hann eitthvað. Það er nefnilega þannig hja okkur félugunum
að ef maður er á útivelli og sendir sms-ið "traustur vinur" þá verður sá er fær sms-ið að pikka félagan upp.
Á meðan ég skrifa til baka hvert í fjandanum ég eigi að ná i hann núna, opnast herbergishurðin og stykkið kemur æj betur í ljós.
Veit ekki hvort það lítur verr út fyrir hana að koma fram frekar mygluð og bjóða góðan daginn eða að ég standi á tippinu, með hálfa flaggstöng að skrifa sms.
Þess má til gamans geta að það er ekki dregið fyrir einn einasta glugga hjá mér. Sennilega fullt af liði búið að sjá mig á tippinu,
það er að segja ef að einhver er vaknaður.
En mér er alveg skítsama.
Góðan daginn, hristi ég fram úr erminni eins og ég hafi aldrei smakkað brennivín.
Jú daginn svarar stykkið og lítur bara ljómandi vel út, þrátt fyrir að vera fuck mygluð.
Mér að skapi. Safstu vel segi ég og glotti. Ef að það er hægt að segja að við höfum sofið eitthvað þá saf ég sennilega alveg þokkalega.
Ertu bara í "naked dude" segir stykkið sem reyndar heitir Heiða.
Já ég er alltaf nakinn heima hjá mér segi ég, það er alveg fullkomnlega eðlilegt seigir Heiða og fer að hlægja.
Var nú reyndar að koma úr sturtu og þetta lítur alveg hrikalega vel út að standa hérna á tippinu eins og fáviti þegar þú kemur fram.
Normal segir Heiða. Nennir þú að skutla mér heim eða ætlar þú að senda mig heim í leigara?
Hvar býðru? ég er í Hlíðunum, rétt hjá Kirkjunni. Drápuhlíðardrottning hugsa ég og hlæ að Steini Ármanni úr Veggfóður. Ódauðleg mynd by the way.
já ok, ég ætti að geta hent þér heim, er reyndar á leið í mat til mútter á næsta bakka en þetta sleppur þar sem að þetta er í leiðinni.
Ljúgandi eins og alltaf, þarf jú að sækja Þránd.
Frumlegur samt að kaupa þér íbúð einum bakka frá mömmu, segir Heiða eins og ég sé geðveikt ósjálfstæður.
Tek upp síman aftur og sendi annað sms á Þránd.
Hvar í andskotanum ertu? ég er á leiðinni en keyri ekki í hringi þar til ég finn þig.!!
Ætlar þú að keyra mig heim á tippinu eða að lauma þér í einhver föt? Ég var nú satt að segja að vonast eftir að þú myndir týna af þér fötin og við tækjum einn stuttan áður en við förum. Maður er jú alltaf sami perrinn daginn eftir.
Ég væri svo sem alveg til í það ef að ég væri ekki svona ógeðslega þunn, síðan þarf ég að fara í boð núna kl 15 segir Heiða brosandi. Pottþétt að ljúga hugsa ég.
Á meðan ég lauma mér í fötin hlæ ég að því að Heiða sé að fara að taka "walk of shame" fyrir framan kirkjuna.
Sennilega hressandi á sunnudögum þegar fólk sér hana á leiðinni heim er það er á leiðinni í kirkju.
Hvernig er það Heiða, er ekki magnað að koma heim á sunnudagsmorgnum í djammgallanum þegar fólkið er á leiðinni í kirkju.
Jú það er alveg fucking meiriháttar. Held stundum að prellinn í kirkjunni eigi eftir að koma og banka upp á hjá mér og reyna að reka út illa anda í íbúðinni minni.
En annars fer ég eiginlega aldrei heim með strákum, og hvað þá að sofa hjá einhverjum sem að ég þekki ekki.
Aftur að ljúga hugsa ég, heldur að hún að ég sá algjört fífl?
Klukkan að detta í tvö. Mútter fer örugglega að hringja og ekki kemur neitt frá Þrándi.
Á meðan við röltum niður i bílageymslu kemur loksins sms frá Kidda. Árbær. Hraunbær 15. Drífa sig.
Eins og það hafi staðið á mér í þessu máli. Týbíst hann að senda svona sms.
Eitt stopp í leiðinni í lagi? Já já, þá færðu líka að sýna sönnunargagnið fyrir söguna sem að þú átt eftir að segja vinum þínum seinna í dag um mig.
Hverjar eru líkurnar á því að maður fari heim með píu sem að hugsar eins og gaur velti ég fyrir mér.
Á bílaplani við Hraunbæ 15 stendur Þrándur og er sama sem að drepast úr kulda. Daginn, og árið lætur hann út úr sér. Heiða þakkaði þakkar fyrir það gamla. Ekki að hún hafi nokkuð að þakka fyrir, nema kannski einn brandara eða svo fyrir nokkrum tímum.
Síminn hrigir aftur. Á þessum stutta tíma sem að ég hef verið með Heiðu þennan annars þynnkudag þá hefur síminn ekki stoppað. Meiriháttar alveg. Frú Ingibjörg, ég verð kominn eftir 30 mín. Ok ég hélt að þú hefðir bara sofnað aftur segir mútterin.
Ég þurfti að sækja Þránd, þannig að ég tafðist aðeins. Og stykkið segir mamma? Hún er í strætónum líka. Þrándi fannst þetta jafn fyndið og mér. Keyrðu varlega segir mútter. Passar alltaf upp á piltinn.
Í hlíðunum eru heldur enginn vandræaleg móment. Heiða kysstir mig á kinnina og segir að við heyrumst bara. Hleypur svo inní blokkina.
Ég hefði líka hlaupið. Prellinn gæti verið fyrir handan hornið með krossinn að vopni.
Jæja, hver var sú heppna spyr ég? já eða óheppna svarar Þrándur. Eða hvort að ég hafi hreinlega verið óheppinn. Var þetta einhver viðbjóður sem að þú fóst á?
Nei alls ekki, hún leit mjög vel út. Veit bara ekki hvort að hún sé sátt við mig þar sem að ég sofaði um leið og við komum upp í rúm.
Brennivínið sigraði mig að lokum. Og þú laumaðir þér ekkert upp á hana þegar þú vaknaðir? Nei ég vildi bara komast heim.
Er með númerið hennar þannig að ég get þá bjallað á hana ef að ég nenni því.
Ekki var mikið talað á leiðinni upp í Mosfelsbæ .Báðir fórnarlömb þynnku og sameiginleg ákvörðun um segja ekki neitt, án þess að það hafi verið rætt eitthvað sérstaklega.
Er ég loks kem upp í Gettó aftur þá er mútterin með allt á hreinu, maturinn klár og skaupið frá því í gær í endursýningu á ríkiskassanum. Eftir matinn leggst ég aftur í sófan. Breytti til og át enn einu sinni of mikið. Er samt ekki frá því að maturinn hafi verið betri í dag en hann var í gær. Þynnkan talar gott fólk.
Sársauki í enninu er eitthvað sem að ég var ekki með fyrr um daginn. Held ég sé að dreyma en að lokum kannast ég við rödd sem er orðin frekar pirruð á mér og fatta í leiðinni að ég er að að fá selpit í ennið. Tanja Systir. Þetta þýðir bara að ég er búinn að sofa of lengi og á að vera mættur ásamt Tajnu til pabba eftir smá stund. Það stemmir. Fuck. Ég er aldrei of seinn.
Heima hjá kallinum er matur eins og á jólahlaðborði. Ekki að maður hafi étið nógu mikið heima hjá mömmu. Get ekki beðið eftir að þessi jólatörn sé búin, þá hættir maður kannski að éta.
Kallinn nettur eins og venjulega, býður upp á kaldan fyrir mat og heimtar að ég taki með honum koníak eftir matinn.
Eins og maður hafi ekki verið nógu vondur og leiðinlegur við lifrina í gær. En ég læt að sjálfsögðu bjórinn og koníakinn ofan í mig eins og ekkert hafi í gerst.
Á leiðinni heim fær ég svo sms frá Kalla. Djamm í kvöld? Lít á síman og hristi hausinn í leiðinni. Svara til baka: "heimskar spurningar bjóða upp a heimskuleg svör"
Ég fer beint í náttföt er ég kem heim, þrátt fyrir að klukkan sé ekki nema tíu þá hefur að því virðist gærkvöldið hafa náð í skottið á mér.
Kveiki á flakkaranum, renn yfir myndirnar og leita að dúndur fínni ræmu. Lord of the Rings klikkar aldrei.
Nær svefni en vöku hristist síminn á borinu, sms nr c.a 100 yfir þann daginn. skilaboðin eru frá Heiðu. Hún er of nett þessi pía hugsa ég er ég les skilaboðin.
"hvernig er það, á ég að panta tíma á húð&kyn strax í fyrramálið eða sleppur þetta?"
Hlægjandi skrifa ég til baka " á morgun er annar janúar, það er vörutalning hjá húð&kyn"

Ísbjörn

8 comments:

Nafnlaus sagði...

Þetta er líklega besta lesning í heimi. Öll blogg eru rusl í samanburði við þetta. Ég vona að fólk fái að lesa fleiri kafla eins og ég fékk að gera.

36 ára.

Nafnlaus sagði...

Þetta er það allrabesta sem eg hef lesið á nokkru bloggi um ævina :)))) Þvílíka snilldin..Get ekki beðið eftir part 2..kv Haukur.

Hanna Bára sagði...

Þetta er glimrandi! kafli 2. Takk

Hanna Bára

Nafnlaus sagði...

Ný hlið á Ísbirninum. Bíð eftir framhaldinu.

kv.Kristín

Nafnlaus sagði...

Meistaraverk!!! Erum við að tala um jólabókina í ár...jafnvel til sölu í Eymundsson?

Keep it up

kkv. Einar Ingi

Nafnlaus sagði...

Ég er allavega að leita mér að útgefanda með eistu sem að þorir að gefa eitthvað svoldið crazy út. á 9 kafla í viðbót en er ekki viss um að ég birti þá alla hérna

Ísbjörn

Gummi Jóh sagði...

Þetta er klassi.

Svo mikill klassi að Mamma Joh las þetta allt og líkaði vel.

Nafnlaus sagði...

Fæst orð bera minnsta ábyrgð....

Kv
Fósturmamman