sunnudagur, ágúst 01, 2010

Að vilja vera einhver annar en maður er

Oftar en ekki þá hef ég skrifað um hvað ég væri til í að vera ef að ég væri ekki það sem ég er.
Eftir að hafa farið í bíó á föstudaginn þá langaði mig geðveikt til að vera töframaður. Held að það væri massa cool að vera töframaður. Töfra bara eitthvað shit til að koma sér út úr hinu eða þessu.

Á laugardaginn þá var ég á röltinu og sá hunda eins og svo oft áður. Ég er með hundaveiki á alvarlegu stigi og hef verið með það síðan ég þannig séð man eftir mér. En allavega þá held ég að það sé geðveikt gaman að vera hundur. Hundar eru nefnilega með hressandi reglur þegar kemur að því að hittast, kynna sig og leika.
Það virðist nefnilega vera þannig að þegar hundar hittast þá sé eftirfarandi basic kurteisi. Yfirleitt horfa þeir hvorn á annan í smá stund, síðan ef farið í það að þefa af rassinum á hvor öðrum. Eftir það þá er farið að leika. Og hundar eru með hressar reglur þegar kemur að því að leika.
Reglurnar virðast vera 2. Fyrsta reglan er að stig virðast vera gefin fyrir að bíta/narta í eyra og síðan eru líka stig gefin fyrir að ná hinum niður og standa yfir honum.

Ég get setið og horft á hunda leika sér endalaust.

Það sem að ég hef verið að velta fyrir mér síðan á laugardag er að við gefum okkur að ég hitti min góða vin Didda eftir við höfum ekki hisst lengi. Gefum okkur að Diddi komi í heimsókn til mín í Osló og ég hitti hann niðri í miðbæ. Við myndum síðan nudda andlitunum aðeins saman og síðan myndum við félagarnir beygja okkur niður og þefa aðeins af rassinum á hvor öðrum. Síðan tækjum við okkur til og myndum leika okkur við að slást og fólk á götunni gæti síðan gefið stig fyrir hvert skipti sem að annaðhvort ég og Diddi myndum bíta hvorn annan í eyrað eða annar næði hinum niður og hinn stæði yfir hinum klofvega.

Þetta væri hressandi ef að það væri hægt að færa hundareglurnar inn hjá mannfólki. Hversu fyndið væri það að arfaslakur Forsætisráðherra Frú Jóhanna Sigurðardóttir myndi ýtrekað reyna að bíta í eyrað á Fjármálaráðherra Herra Steingrími J Sigfússyni fyrir framan pontu á Alþingi og Forseti Alþingis væri dómari. Jón Gnarr Borgarstjóri gæti síðan verið dómari í borgarstjórn. Dagur Eggerts VS Hanna Birna

Eða að við gefum okkur að þetta gerist á handboltavellinum. Hrafnhildur Skúladóttir VS Hanna Guðrún Stefánsdóttir. Atli Hilmarsson VS Halldor Ingólfsson. Eða að fara aðeins lengra aftur í tíman og sjá Ragnheiði Stefensen VS Judid Estegal?

Held að þetta myndi hressa upp á mannlífið heima. Kannski þó fyrr hefði verið.

Þetta er allavega hundurinn sem að mér langar í. Það er ekki langt í að ég eigi afmæli ef að einhver er að spá í þetta alvarlega.


Og ef að myndin heillaði ekki neitt, þá geriri videoið það 100%




Annars þakkar Ísbjörn áheyrn á fyrirlestri dagsins

Ísbjörn

4 comments:

Nafnlaus sagði...

Þeir eru æði þessir.....
láttu nú verða af því að láta þennan draum þinn rætast... ;-)
kveðja mamma

Nafnlaus sagði...

Þeir eru æði þessir.....
láttu nú verða af því að láta þennan draum þinn rætast... ;-)
kveðja mamma

Nafnlaus sagði...

ég minntist á að ég ætti afmæli bráðum. Er alveg til í að skipta á því sem að ég er búinn að panta frá þér í að þú gefir mér Beagle i staðinn

Ísbjörn

bjarney sagði...

Hey þetta er einmitt hundategundin sem mig langar í, þeir eru æði!! Annaðhvort Beagle eða Rottweiler :-D

kv.annar hundasjúklingur (og reyndar líka klikkuð kattakelling..!)