Vinur minn sat við morgunverðarborðið um daginn þegar að kærastan hans fékk sms í síman og hún las það og sagði. Ástin mín, helduru ekki að Sigga frænka hafi fengið vinnuna sem að hún sótti um daginn. Henni líst bara voðalega vel á þetta allt saman og hlakkar til að byrja.
Vinur minn leit upp úr morgunkorninu, horfði á hana og sagði. Til hvers í andskotanum ertu að segja mér þetta? Mér er sko alveg skítsama hvað hún Sigga frænka þín gerir eða gerir ekki.
Þetta svar vakti enga káttínu hjá kærustunni á sama tíma og kærastanum fannst þetta vera eyðsla á lofti að hafa minnst á þetta.
Svo er það nú málið, hver ætti að vera pirraður út í hvern? Stúlkan út af svarinu eða strákurinn út af þessum tilgangslausu upplýsingum?
Persónulega þá styð ég vin minn í þessu, fuck hvað þessar upplýsingar hefðu verið tilgangslausar fyrir mig.
Spurning hvað ykkur finnst?
Ísbjörn
7 comments:
Ég hugsaði meira svona hvort vinurinn væri 18 ára? Maður segir bara já ok ... ;)
HHB
Til að halda öllu góðu og sýna þroskamerki þá svarar maður. ,,Nú frábært. Hún á pottþétt eftir að standa sig vel." En hugsa það sem þú skrifaðir ef hann vill það.
36 ára.
Yes dear.
það þarf ekki að hafa um það fleiri orð.
kv.
Ferndorf
Held að þessi vinur þinn ætti að fá sér meira spennandi morgunmat :-)
eðs skipta um kærustu.....
maður þarf að taka þátt í "mörgu" jafnvel þótt áhuginn sé takmarkaður...
mamma
Ég hugsaði nákvæmlega það sama og HHB þegar ég var að lesa þetta - svo ég "styð" hennar tilgátu.
Ýmislegt þarf maður að gera sem ekki er skemmtilegt, en lætur sig hafa það - það kallast þroski.
Veit að þú ert uppfullur af því Stinni minn, svo ég hef fulla trú á þér.
Kv
Fósturmamman
Vill samt bara benda a hvad tetta er ogedslega fyndid!
Isbjörn
Akkúrat.....og þarna kikkar þroskinn marg umtalaði inn
Kv
Fósturmamman ;)
Sendu inn athugasemd