Það hefur oft verið þannig að ég hef sagt þegar leikmenn eru í viðtali þá hef ég yfirleitt kvartað þegar þeir taka með sér krakkana sína með í viðtöl. Hef oft sagt að þetta muni ég aldrei gera.
Logi Geirsson sagði einu sinni að hann myndi aldrei fara að grenja eftir leik. Ég fagnaði þessu kommenti hjá honum eins og ég hefði orðið heimsmeistari á sínum tíma. Þetta var jú í atvinnumönnunum okkar á sínum tíma. Sá síðan þáttinn með Óla Stef og pæli aðeins í málinu.
Lenti nefnilega í því í gær að ég er kannski ekki eins töff og ég hélt. Spilaði nefnilega minn síðasta leik í gær með Rimpar "Prumpar" City. Eftir leikinn þá fékk Ísbjörn gjafir frá liðinu, stjórninni og frá stuðningsmönnum. Það að standa fyrir framan 1000 manns, þar sem að allir standa í lappirnar og klappa saman höndum og kalla nafnið þitt ásamt söngvum er eitthvað sem að ég hef í raun engan áhuga á í að leda í aftur.
Kristinn Björgúlfsson stóð nefnilega fyrir framan þetta lið í gær, stuðningsmenn nánast búnir að rífa af mér búninginn fyrir framan alla og þakkaði í raun guði fyrir að ég þurfti ekki að tala við í mikrafóninn. Þarna stóð ég með tárin í augunum eins og skoffín.
Núna skil ég þegar að Beckham fór að grenja þegar hann kom til Old Trafford eftir langa fjarveru. Núna skil ég þegar Óli Stef fór að grenja þegar hann komst í úrslit í Peking.
Slapp sem betur fer við að tala í mikrafóninn og allt það. Einu atriði skal ég lofa ykkur. Logi Geirsson á eftir að fara að grenja þegar hann yfirgefur Lemgo. Er nokkuð viss um að vinn góði vinur í Lemgo á eftir lenda í verri stöðu en ég! Svo mikið er víst.
Kannski er ég ekki eins töff og ég hélt, kannski er ég líka skoffín?
Ísbjörn
11 comments:
hahahaha ;)
Kiddi ég fer ekki að grenja.
kv LG
hahahahah og ég stórefast um að ég fari að grenja líka :)
Kv
Einar
Geta pabbar ekki grátið?
Ég vorkenni ykkur ef þið getið það ekki.
Sólrún
hahaha, já, það er víst líka hægt að beygja hörðustu nagla, þegar það er lamið rétt á þá.
Hilsen, SÖG, Aarhus
Hahaha gott á þig ;)
HHB
Kiddi minn mér finsnt þetta sætt og sýnir þinn innri mjúka mann. Allir hafa gott af því að gráta annað slagið :)
EBH
Ég skil þig vel Hr. B.
35 ára
Það er töff að geta grátið!
Kv.
Ferndorf
liggur leiðin heim í breiðholtið núna?
Blogga þrátt fyrir Ísland. Koma svo.
36 ára.
Dauður úr öllum æðum ?
Óli Gísla
Sendu inn athugasemd