sunnudagur, apríl 25, 2010

Þarf alltaf að eyðileggja allt?

Undanfarið þá hef ég mikið rætt við vin minn varðandi Facebook. Mér finnst það hressandi síða en það er alltaf fólk sem vinnur í því að eyðileggja góða hluti. Það vill nefnilega svo leiðinlega til að það er fólk sem að er alltaf troðandi fullt af hlutum inn á síðuna hjá manni. Leiðinlegum hlutum eins og t.d þessum ömurlegu spurningarleikjum hvort að ég sé góður vinur eða ekki. Reikna með að allir séu með á því sem að ég er að tala um.

Þeir sem að eyða tíma sínum í Farmwille ættu að leita sér aðstoðar. Hvað er málið með að hanga í þessum leik? Eruð þið eitthvað þroskaheft?

Síðan er það varðandi statusana. Sumir vita ekki neitt, það er bara alveg á hreinu. Máli mínu til stuðnings þá ætla ég að koma með nokkra statusa frá "vinum" mínum á Facebook.

Lasarus!
Öllum er alveg skítsama þó að þú sért veikur.

Er að fara á tónleika í Vídalínkrikju.
Öllum er líka alveg sama um það.

:(
Hvað er þetta? er ekki bara hægt að gubba því út úr sér hvað málið sé?


Ætla að bóna drusluna í þessari bongóblíðu
Til hamingju með það. Öllum er líka alveg sama.

En það eru ekki allir sem að eru bjánar og sumir eru með hressandi statusa. Við tökum dæmi

Er six feet higher - ekki mér að þakka

Flott jafntefli hjá strákunum OKKAR gegn Frökkum í gær, en ekki nógu góð úrslit hjá strákunum YKKAR í dag.

109


Annars tókum við okkur til og unnum leik um helgina. Maður var næstum því búinn að gleyma því hvað það er gaman að vinna. Sigur á b-liði Rein Necker Löven og með þessum sigri þá dróum við þá með okkur í 4 deild. Eitthvað sem að kryddaði þetta enn betur. Ísbjörn var með 7.

Að lokum þá vill ég óska nokkrum til hamingju.
Hreiðar Levy og Svana, til hamingju með Gull.
Gummi Jóh og frú, Til hamingju með Brons.
Sigrún Fósturmamma, til hamingju með daginn.
Framstúlkur, til hamingju með silfur.

9 comments:

Nafnlaus sagði...

Ja sehr gut!
Þætti gaman að vita hvað þú kallar brons?

Ferndorf

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir mig !

Kv

Nafnlaus sagði...

Þú ættir að vita hvað Brons þýðir Hilmar minn miðað við okkar sjúka húmor.

Ísbjörn

Nafnlaus sagði...

ertu s.s. að segja að þínir statusar séu ávallt uppfullir af fróðleik og skemmtilegheitum?

Nafnlaus sagði...

Stinni minn !
ég var að finna nokkrar óborganlegar myndir frá þjóðhátíð af þér og tveim landsliðmönnum í bolum að fóstursystur þinni....sníkjandi humar í næsta húsi - mikið hlegið hérna og spurningin er... þarf ekki að skanna þetta inn og opinbera þetta? Eða jafnvel selja Séð og heyrt þær....hahahaha

Kv
Fósturmamman

Nafnlaus sagði...

Það væri allavega hressandi að fá þessar myndir sendar á maili. Er ekki viss um að það sé sniðugt að dúndra þessu inn á facebook. Er hins vegar viss um að Séð&Heyrt hefur áhuga á þessum myndum enda man ég eftir því hversu fyndið þetta var á sínum tíma.

Statusar á facebook eiga fyrir fróðleik. En alltaf fullir af skemmtilegheitum ? já.

Ísbjörn

Nafnlaus sagði...

þessar myndur eru "FAKE"
hef aldrei farið á þjóðhátið

Nafnlaus sagði...

Er einstaklega ánægður með þessa færslu. Kann svo vel við Ísbjörninn fær upp í kok af einhverju og lætur fólk heyra það án umbúða. Er svo fáránlega sammála með þetta facebook dæmi. Meira svona takk. Og takk fyrir mig og gullið.

kv. Hleddi Gúmm og Lille Levý

Gummi Jóh sagði...

Gull = Sveinbarn
Silfur = Rauðhært sveinbarn
Brons = Stúlkubarn

Ég er brjálaður að hafa fengið brons, ALVEG!

En þakka þó hlýjar kveðjur.