Til stóð að segja frá skólagöngu Ísbjörn síðustu 8 vikur en bloggerinn fraus og sú saga býður því betri tíma. En örvæntið ekki.
Hr.109 setti allt á annan endan hérna í gær. Í fyrradag þá sátum við félagarnir hérna heima og horfðum á mína menn í Argentínu vinna þýsku Gyðingana. Rölti hérna um gólfin eins og vindurinn. Eins og oft hefur gerst áður þá fer hann og felur sig einhversstaðar og það heyrist ekki í honum í nokkra stund. Ekki velti Ísbjörn neitt sérstaklega upp úr því og gaf honum bara mat áður en að ég fór að sofa. Ekki hafði hann borðað matinn sinn þegar ég vaknaði og var það frekar undarlegt. Er ég kom heim úr skólanum þá hafði hann heldur ekki borðað matinn. Fór ég því að leita að honum. Opnaði þá kassa sem að hann hefur til að leika sér í og fela sig, kíki undir alla sófa ásamt búrinu hans en fann hann hvergi.
Því var leitð inn á klósetti, inn í gestaherbergi og inn í mínu svefniherbergi ásamt eldhúsinu en ekki brá fyrir Hr.109. Er hér er við sögu komið þá var stressið farið að láta bera á sér.
Ísbjörn ákvað því að leita á ólíklegustu stöðum. Allir skápar voru opnaðir. Hringt var í félagan frá kvöldinu áður og hann beðinn um að kíkja í töskuna sína og athuga hvort að hann séi nokkuð eitt stykki Broddgölt þar á ferð. Ekki fann vinur minn Hr.109 heldur.
Algjört panikk greip um sig og ég kíkti ofan í ruslið, ofan í matarruslið og ofan í papparuslið. Hér þarf nefnilega að flokka allan andskotan. Að lokum þá ákvað ég að henda út pokanum sem að geymir allt sem að hefur með plastílát að gera. Til að vera alveg viss um að Hr.109 væri nú örugglega ekki í pokanum og ég myndi nú ekki henda stubbnum þá rúllaði ég pokanum aðeins og kíkti vel og vandlega inn í pokan.
Og viti menn, í pokanum fyrir plastílát hafði Hr.109 komið sér í vandræði. Hann hafði nefnilega komið sér inn í pokan en kom sér ekki út aftur.
Hr. 109 var gríðarlega feginn frelsinu og hakkaði í sig matinn er hann var lagður aftur inn í búrið.
Við erum að tala um að ef að einhver annar en ég hefði skoðað þennan poka þá væri sennilega Hr.109 í einhverjum ruslabíl á leiðinni frá Prumpar City.
Við birtum síðan mynd af uppáhladsgæludýri Íslands.
Pistillinn er hins vegar langt frá því að vera búinn. Ísbjörn dreymir annað slagið og þegar draumarinir eru hressandi þá komast þeir á bestu bloggsíðu landsins. Hér kemur því einn slíkur. Sá er Ísbjörn dreymdi í nótt.
Ég lá upp í rúmi með stúlku sem að ég þekki vel. Sjöfn Kristjánsdóttir er daman í draumnum.
Við lágum sem sagt upp í rúmi og vorum eitthvað að koma við hvort annað. Sjöfn var í bol og af einhverjum ástæðum með gult svitaband á sér. Sem mér fannst frekar undarlegt miðað við það að við lágum upp í rúmi. En það er kannski aukaatriði. Þegar Ísbjörn ætlaði síðan að toga Sjöfn úr nærbuxunum þá gerist það ótrúlega. Sjöfn Kristjánsdóttir var með bleygju
Hvort sem að það hafi verið gríðarlegt turn off eða ekki þá vaknaði Ísbjörn við það og átti sekki séns á að sofna aftur. Leit á klukkuna og hún ekki meira en tíu mínútur yfir sjö.
Hérna hljóta að hrynja inn kommet um draumaráðningar
Ísbjörn býður góða helgi ásamt Hr.109. Að ógleymdri frú Ásgerði
4 comments:
Ég er ánægð að vera kona drauma þinna... aukaatriði hvernig draumurinn er ;)
knús og kiss:*
Að dreyma konu í bleyju merkir að þú hefur gert í buxurnar í kvennamálunum. Þetta vita allir.
SL
eru menn farnir að huga að barneignum...neeeei mar spyr sig??
kv matta
Helt kannski ad eg væri i teim of ungum! En eg hef sennilega drullad upp a bak!
Isbjörn
Sendu inn athugasemd